Matur í ferðaþjónustu - upplifun, staðarandi og sjálfbærni
Einurð og Íslenski ferðaklasinn héldu nýverið vel sóttan fund um mat í ferðaþjónustu, þar sem um 50 manns komu saman til að ræða hvernig matur, hráefni og staðbundin matarmenning geta styrkt upplifun gesta og sérstöðu áfangastaða.
Á fundinum var fjallað um mat sem mikilvægan hluta af ferðaupplifuninni — ekki aðeins sem máltíð, heldur sem leið til að miðla sögu, menningu, árstíðum og staðaranda.
Fram komu Gísli frá Ylja/Laugarás Lagoon, Francesc Fusté-Forné, prófessor við University of Girona, og Auður Vala frá Blábjörgum Resort. Í erindunum var meðal annars rætt um hvað felst í sannri gestrisni, mikilvægi árstíðabundinna hráefna, staðbundinnar sérstöðu og hvernig hringrásarhugsun getur orðið hluti af daglegum rekstri og vöruþróun.
Gísli fjallaði um hvernig upplifun gesta byggir ekki eingöngu á dýrum eða einstökum hráefnum, heldur á því að skilja umhverfið, vinna með það sem staðurinn hefur upp á að bjóða og láta gesti finna að þeim sé vel tekið.
Francesc Fusté-Forné setti mat í ferðaþjónustu í alþjóðlegt fræðilegt samhengi og minnti á að lykt og bragð geta skapað sterkar og eftirminnilegar minningar. Hann lagði áherslu á áreiðanleika, árstíðir og tengsl matar við landslag og náttúru.
Auður Vala deildi dæmum frá Blábjörgum Resort á Borgarfirði eystri þar sem sjálfbærni, staðbundin hráefni og hringrásarhugsun eru hluti af daglegum rekstri. Þar er meðal annars unnið með betri nýtingu hráefna, minni sóun og þróun nýrra vara úr afurðum og hliðarstraumum.
Að erindum loknum fóru fram umræður þar sem skýrt kom fram að matur í ferðaþjónustu er stórt tækifæri fyrir íslenska ferðaþjónustu — bæði til að auka gæði upplifunar, styrkja tengsl við nærsamfélög og skapa meiri sérstöðu áfangastaða.
Við þökkum öllum sem tóku þátt fyrir góða mætingu og lifandi samtal.

