📢 Ný áfangaskýrsla Ratsjárinnar: Sjálfbær og nærandi ferðaþjónusta í brennidepli

Ratsjáin veturinn 2025

Sjálfbærni og nærandi ferðaþjónusta í brennidepli framtíðar

Ratsjáin veturinn 2025 stóð yfir frá janúar til mars og leiddi saman 58 fyrirtæki úr ferðaþjónustu um land allt í lærdómsferli með áherslu á sjálfbærni og nærandi þróun í ferðaþjónustu. Verkefninu  var stýrt af Íslenska ferðaklasanum með stuðningi frá atvinnuvegaráðneytinu. Ratsjáin hafði það að markmiði að efla hæfni stjórnenda, auka vitund um sjálfbæra ferðaþjónustu og styðja fyrirtæki í að þróa eigin sjálfbærnistefnu.

Í 12 vikur var unnið með raunveruleg viðfangsefni og áskoranir þátttakenda í gegnum hnitmiðaða fræðslu, netvinnustofur og svæðisbundna fundi. Þessi nálgun gerði þátttakendum kleift að tengja stefnumótunina beint við sinn rekstur og skapa raunhæfar aðgerðir í átt að sjálfbærari framtíð. Sérstök áhersla var lögð á tengslamyndun og samfélagslega vídd, sem eflir samvinnu og nýsköpun í greininni og hvetur til enn markvissari samvinnu þvert á greinar og landshluta.

Á lokadegi verkefnisins hittust þátttakendur á Akureyri þar sem dregið var saman lærdómur, skoðaðar framtíðarsýn og nýjar hugmyndir kviknuðu. Niðurstöður viðhorfskönnunar staðfesta mikla ánægju með verkefnið; meðaleinkunnin var 9,05 af 10 og flestir þátttakendur lýstu áhuga á áframhaldandi þátttöku.

Ratsjáin hefur sannað sig sem áhrifaríkt verkfæri fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu og styður beint við stefnumótun stjórnvalda til 2030.

Í haust tekur önnur lota við með áherslu á verðmætasköpun, vöruþróun og stafræna þróun. Nú þegar liggja fyrir skýrar vísbendingar um áhuga og þörf á áframhaldandi fræðslu og stuðningi.

Við hvetjum öll fyrirtæki í ferðaþjónustu – stór sem smá – til að taka þátt í þessari vegferð. Ratsjáin er vettvangur fyrir tengsl, nýja sýn og hagnýta vinnu – og hver einasti þátttakandi skiptir máli í mótun sjálfbærrar framtíðar ferðaþjónustunnar á Íslandi.

Áfram Ratsjáin – áfram íslensk ferðaþjónusta!

🔗 Lesa áfangaskýrsluna hér

Þáttakendur í Ratsjánni eftir góðan dag.

Next
Next

Ratsjáin rýkur af stað með fjölda þátttakenda um allt land