Grindavík – saman í sókn: Frá samtali til aðgerða

Undanfarna mánuði hefur Íslenski ferðaklasinn, í samstarfi við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, Grindavíkurbæ, Markaðsstofu Reykjanes, Hekluna og fjölda lykilaðila, unnið að verkefninu Grindavík – saman í sókn. Verkefnið er liður í uppbyggingu atvinnulífs í Grindavík og byggir á markvissri nálgun þar sem samtal, samvinna og sameiginleg framtíðarsýn eru sett í forgrunn.

Frá upphafi var ljóst að verkefnið þyrfti að vera meira en hefðbundin greining eða röð vinnustofa. Markmiðið var að skapa lifandi vettvang þar sem fyrirtæki, frumkvöðlar og stofnanir gætu komið saman, deilt reynslu og unnið að raunverulegum áskorunum. Í gegnum sex vinnulotur, sem fóru fram bæði á staðnum í Grindavík og í rafrænu formi, var lögð áhersla á jafningjarýni, virka þátttöku og hagnýta þróun hugmynda.

Nálgun verkefnisins byggði á þremur meginstoðum: seiglu og umbreytingarhæfni, samvinnu og greiningu, og ekki síst klasahugsun þar sem atvinnulífið er skoðað sem vistkerfi þar sem samkeppni og samstarf fara saman. Þessi nálgun skapaði rými fyrir nýjar tengingar, aukinn skilning á styrkleikum svæðisins og sameiginlega ábyrgð á næstu skrefum.

Í gegnum ferlið þróaðist skýr mynd af því hvernig byggja megi upp fjölbreyttara og sjálfbærara atvinnulíf í Grindavík. Áhersla var lögð á lykilþætti á borð við samkeppnishæfni og verðmætasköpun, vöruþróun og nýsköpun, ímynd og markaðssetningu, auk tengslanets, auðlindanýtingar og sjálfbærni. Þessar áherslur endurspegla bæði sérstöðu svæðisins og þau tækifæri sem felast í samspili ólíkra atvinnugreina.

Helstu niðurstöður verkefnisins fela í sér skýra og sameiginlega framtíðarsýn atvinnulífs Grindavíkur til ársins 2030, auk forgangsröðunar verkefna sem mynda grunn að áframhaldandi þróun. Jafnframt hefur verkefnið styrkt tengslanet atvinnulífsins, aukið traust milli aðila og skapað vettvang fyrir áframhaldandi samstarf.

Mikilvægur lærdómur sem dreginn er af verkefninu er að árangursrík uppbygging krefst ekki eingöngu fjármagns eða utanaðkomandi stuðnings, heldur fyrst og fremst samstöðu, skýrrar sýnar og markvissrar eftirfylgni. Hugmyndir og framtíðarsýn skila aðeins raunverulegum árangri þegar þeim er fylgt eftir með tímasettum aðgerðum, ábyrgð og samhæfingu.

Næstu skref snúa því að framkvæmd. Forgangsverkefni hafa verið skilgreind og áhersla verður lögð á að festa samstarfið í sessi með varanlegum vettvangi sem styður við áframhaldandi þróun, nýsköpun og samhæfingu innan atvinnulífsins. Markmiðið er að tryggja að sú orka, þekking og samvinna sem hefur skapast í verkefninu nýtist til fulls í uppbyggingu næstu ára.

Verkefnið Grindavík – saman í sókn hefur þannig lagt grunn að nýjum kafla þar sem áhersla er ekki lengur á viðbrögð við áföllum, heldur á sókn, framtíðarsýn og markvissa þróun. Grindavík er ekki aðeins að byggja sig upp aftur, heldur að móta nýtt og öflugra vistkerfi atvinnulífs sem getur staðið sterkt til framtíðar.

Við hlökkum til að hefja næsta kafla af jafn miklum krafti og orku einsog þessi fyrsti gaf fyrirheit um.

Next
Next

Erum við að leita að þér?