Hvernig geta ferðaþjónustufyrirtæki nýtt sér gervigreind í daglegum störfum?
Ratsjáin samtengd um allt land
Íslenski ferðaklasinn í samstarfi við Markaðsstofur landshlutanna bjóða ferðaþjónustufyrirtækjum á vinnustofu þar sem kastljósinu verður beint að því hvernig gervigreind getur nýst í rekstri, markaðssetningu, þjónustu og daglegu starfi.
16. apríl á netinu
Kl: 10:00-12:00
Á vinnustofunni flytur sérfræðingurinn Magnús Smári hnitmiðað erindi um stöðu gervigreindar í dag og þau raunhæfu tækifæri sem fyrirtæki geta gripið strax. Að erindi loknu tökum við umræður í smærri hópum þar sem þátttakendur fá tækifæri til að deila reynslu, velta upp hugmyndum og ræða hvernig gervigreind getur nýst í þeirra eigin starfsemi.
Viðburðurinn er ætlaður ferðaþjónustufyrirtækjum sem vilja fá skýra og aðgengilega innsýn í hvernig hægt er að nýta gervigreind á einfaldan og árangursríkan hátt.
Viðburðurinn er aðildafélögum að Ferðaklasanum og Markaðsstofunum að kostnaðarlausu.
Skráning: https://forms.gle/4wd1XxQqVntT7goA9

