Gæða stefnumót við Klasafélaga
Staðan, tæknin og næstu skref
Í dag kom saman öflugur hópur aðildarfélaga Íslenska ferðaklasans stjórnendur og frumkvöðlar með djúpa og víðtæka reynslu úr greininni. Fundurinn fór fram hjá Eldingu og var mikilvægur vettvangur til að fara yfir stöðu ferðaþjónustunnar, ræða forgangsmál og ræða sameiginlega sýn á næstu skref.
Harðnandi samkeppni og breyttar forsendur
Ferðaþjónusta starfar í krefjandi alþjóðlegu samkeppnisumhverfi þar sem hátt raungengi og auknar kröfur um gæði, sjálfbærni og skilvirkni kalla á skýra stefnu og markviss viðbrögð. Umræðan á fundinum snerist ekki einungis um áskoranir heldur líka um möguleg tækifæri og sérstöðu okkar á Íslandi.
Stefnumið Ferðaklasans og verkefni fram undan
Framkvæmdastjóri fór yfir stefnumið klasans 2026–2027 og helstu verkefni næstu missera.
Áherslur næstu tveggja ára eru skýrar:
Gervigreind og nýsköpun
Nærandi ferðaþjónusta
Öflugur samstarfsvettvangur
Alþjóðatengsl og fjármögnun
Markmiðið er að styðja aðildarfélög í að auka framleiðni, bæta gæði og skapa meiri verðmæti á sjálfbærum grunni.
Tæknin sem lykill að framleiðni
Ein líflegasta umræðan snerist um hvernig tæknin og þá sérstaklega gervigreind getur orðið helsti bandamaður greinarinnar. Deilt var hagnýtum dæmum um:
Einföldun daglegra ferla
Betri nýtingu gagna
Sjálfvirknivæðingu sem sparar tíma
Lausnir sem auka tekjur og bæta þjónustu
Skilaboðin voru skýr: sé tæknin notuð rétt getur hún létt undir með starfsfólki og skapað svigrúm til að einbeita sér að upplifun gesta. Stjórnendur og starfsmenn á öllum stigum innan fyrirtækisins þurfa að stíga inní þennan veruleika af fullum krafti og nýta sér þau tól og tæki sem til staðar eru. Ótti við breytingar eða tækni mun ekki bara skilja fyrirtækin eftir ein og sér í samkeppninni heldur draga úr þeirri mikilvægu keðjuverkun og samstillingu sem greinin þarf að hafa í heild sinni.
Gæði og innri styrkur
Umræðan snerist einnig að því hvað hvert fyrirtæki getur gert innávið. Í harðri alþjóðlegri samkeppni verða gæði, fagmennska og framúrskarandi þjónusta aldrei mikilvægari.
Sameiginleg niðurstaða fundarins var að sterk samvinna, markviss nýting tækni og skýr gæðastefna séu lykillinn að áframhaldandi árangri.
Íslenski ferðaklasinn mun leggja sitt af mörkum til að vera áfram sá vettvangur sem aðilar úr breiðri keðju ferðaþjónustunnar geta mæst, deilt ráðum og fundið sameiginlega snertifleti til að ná enn meiri árangri saman en hver í sínu horni. Samvinna í samkeppni er okkar keppikefli og það hefur margoft sýnt sig og sannast að þegar gefur á bátinn, þá þarf allar hendur á dekk!
Næsta stefnumót við klasafélaga mun fara fram þann 24.mars hjá Advania kl 8:30. Nánari dagskrá og skráning verður send þegar nær dregur.

