350 milljónir í aukna fagmennsku, nýja tækni og betri rekstur í ferðaþjónustu

Á síðustu fimm árum hefur Íslenski ferðaklasinn sótt 350 milljónir króna í erlend samstarfsverkefni sem hafa skilað sér beint til fyrirtækja í breiðu vistkerfi ferðaþjónustunnar. Verkefnin hafa verið af öllum stærðum og gerðum og unnin ýmisst fyrir stuðning frá Norrænu ráðherranefndinni eða Evrópusambandinu.  Ferðaklasinn hefur stýrt tveimur samstarfsverkefnum þvert á norðurlöndin í samstarfi við ráðuneyti ferðamála sem spanna yfir sex ára tímabil ásamt því að vera leiðandi í þremur stórum evrópuverkefnum sem hafa hvert um sig boðið uppá fjármögnunarleiðir fyrir íslensk fyrirtæki í ferðaþjónustu. 

PHOENIX 4.0 er eitt slíkt verkefni en það hefur einmitt opnað fyrir umsóknir fyrir ferðaþjónustufyrirtæki þar sem aðilum gefst kostur á að sækja um fjármagn til að stuðla að aukinni nýsköpun, sjálfbærni, seiglu eða tækniþróun.  Þau fyrirtæki sem sækja um fjármagn í verkefnið þurfa að mynda samstarfsverkefni með 1-4 öðrum fyrirtækjum sem mega koma úr fjölbreyttri flóru atvinnulífsins. Það geta verið önnur ferðaþjónustufyrirtæki eða fyrirtæki sem bjóða uppá annarskonar þjónustu, s.s tækni, sjálfbærni, vöruþróun, verkefnastjórnun, hönnun, þjónustu eða hvað annað sem eflir fyrirtækin í þessum megin þáttum sem nefnd eru að ofan.

Hvert og eitt samstarfsverkefni hefur 25.000 evrur (ca 3,6mkr) til umráða til að þróa verkefnið og innleiða. Verkefnatímabilið eru 9 mánuðir og er ekki krafist mótframlags frá þátttakendum. Hér er því einstakt tækifæri til að láta metnaðarfull verkefni líta dagsins ljós, hugsið ykkur hvaða drauma samstarfsaðila ykkur langar að vinna með, hvaða vörur, þjónustu eða upplifun, tækni eða innleiðingu ykkur dreymir um að innleiða og hendið í umsókn! Umsóknarfrestur er opin frá 15.janúar – 18.mars en sérstakur kynninga og upplýsingafundur verður haldinn 5.febrúar fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér þetta tækifæri enn betur.  

 

Hægt er að fylgast með kynningafundi á Íslensku hér: Phoenix kynningafundur á TEAMS

Hægt er að fylgjast með kynningafundi á ensku þann 27.janúar kl 9:00 (10:00 CET) Skráning hér.

Next
Next

Ferðaþjónustuvikan – Ráðstefnudagur á Hilton 14.janúar