Ferðaþjónustuvikan – Ráðstefnudagur á Hilton 14.janúar

Líkt og aðrir viðburðir í Ferðaþjónustuvikunni fylltu aðilar ferðaþjónustunnar salarkynni Hilton Nordica þann 15.janúar þegar þétt viðburðadagskrá fór fram.  Hlaðborð ólíkra erinda var á boðstólnum sem byrjaði með tækni og gervigreind, þá tók við Markaðssamtal ferðaþjónustunnar með vinnustofu, í hádeginu gafst gestum kostur á að ganga milli mismunandi þjónustuaðila sem tilheyra ráðstefnuhluta ferðaþjónustunnar.

Eftir hádegið tók svo við viðburður um öryggi, stýringu og gjaldtöku á áfangastöðum en erindaveislunni lauk síðan með sögu og menningatengdri ferðaþjónustu  þar sem við fengum áhugaverð erindi. Í lokin gafst svo gestum kostur á að bóka sig á hraðstefnumót, annarsvegar við tækni, öryggis og sjálfbærni ráðgjafa og svo hinsvegar milli ráðstefnu og ferðaskrifstofu aðila.

 

Yfir 300 manns tóku þátt í ráðstefnudegi Ferðaþjónustuvikunnar og hátt í 100 manns fylgdust með beinu streymi á netinu. Þökkum við öllum sem komu að skipulaginu, sem fjárfestu tíma sínum í þátttöku og þeim sem létu alla viðburðina verða að veruleika kærlega fyrir þeirra hlut. Við hlökkum til að hitta ykkur að ári og eiga þessar mikilvægu tengingar.

 

Ferðaþjónustuvikan er samstarfsverkefni Ferðaklasans, Ferðamálastofu, Íslandsstofu, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa Landshlutanna sem jafnframt standa fyrir Mannamótum, einni stærstu og skemmtilegustu ferðasýningu sem fram fer í Kórnum í Kópavogi í dag, 15.janúar.

Previous
Previous

350 milljónir í aukna fagmennsku, nýja tækni og betri rekstur í ferðaþjónustu

Next
Next

Nýársmálstofa ferðaþjónustunnar fór fram 13.janúar