Nýársmálstofa ferðaþjónustunnar fór fram 13.janúar

Met aðsókn á Nýársmálstofuna og met þátttaka í viðhorfskönnun KPMG sem framkvæmd er árlega.

Nýársmálstofa ferðaþjónustunnar var nú haldin í níunda skipti en að henni standa Ferðaklasinn, SAF og KPMG sem jafnframt framkvæmir viðamikla skoðanakönnun meðal ferðaþjónustuaðila sem svo er rýnt í á málstofunni sjálfri. Aldrei hafa fleiri tekið þátt í könnuninni en hátt í 400 svör bárust frá öllu landinu, frá öllum tegundum rekstrar innan ferðaþjónustu og öllum stærðum fyrirtækja. Einnig var met þátttaka í sal auk þess sem aðilar sem ekki áttu heimangengt geta séð upptöku af viðbuðinum.

Ráðherra ferðamála flutti ávarp þar sem hún hvatti ferðaþjónustuaðila til dáða ásamt því að segja frá nýju frumvarpi sem lagt verður fyrir á haustþingi, ljóst er að verið er að rýna í stjórnslýsluhluta ferðaþjónustunnar og munu komandi mánuðir leiða í ljós möguegar breytingar og forgangsröðun verkefna úr aðgerðaáætlun stjórnvalda hvað varðar stefnumótun greinarinnar. Þá mun samræming milli ferðamálastefnunnar og heildstæðrar atvinnustefnu stjórnvalda einng eiga sér stað.

Sævar Kristinsson, sérfræðingur og framtíðarfræðingur hjá KPMG fór yfir helstu niðurstöður könnunarinnar sem sýnir að ferðaþjónustuaðilar eru uggandi yfir dvínandi samkeppnisshæfni og samkeppnisstöðu Íslands. Hátt raungengi krónunnar, mikil samkeppni við önnur lönd og óhagstæðar ytri aðstærður í heiminum hafa þar mikið að segja og geta dregið úr eftirspurn gesta.

Flugframboð mun minnka að einhverju leiti sem veldur áhyggjum auk þess sem árstíðarsveifla virðist vera að aukast að nýju. Dreifing ferðamanna um landið, allt árið er og verður áfram helsta tækifæri fyrir íslenska ferðaþjónustu ásamt því að tryggja að alþjóðaflug um norður og austurland verði styrkt enn betur. Þá telur mikill meirihluti svarenda að auknar opinberar álögur hafi neikvæð áhrif á reksturinn en að aukin sókn, fjármagn og samstarf til markaðssetningar muni hafa jákvæð áhrif á rekstur, ímynd og eftirspurn eftir ferðum til Íslands.Greininguna má finna í heilu lagi í þessari samantekt hér: Nýársmálstofa

Sex milljónir ferðamanna 2040?

Að lokum fengum við fjóra reynslubolta úr greininni og fjárfestingum til að setja fram sína sýn á ferðaþjónustulandið Ísland árið 2040. Fjölbreyttar sviðsmyndir litu dagsins ljós og þó svo að það séu ýmsar áskoranir sem þarf að fást við hér og nú að þá er framtíð ferðaþjónustunnar björt ef vel er haldið á spilum. Við þurfum að standa saman að framþróuninni og hafa trú á verkefninu, halda áfram að laða að ferðamenn sem bera virðingu fyrir landi og þjóð, fræða þá um menningu og listir, bjóða þeim uppá hálendið og stýra ágengi á viðkvæma náttúru.  Byggja upp af ábyrgð og umhyggju fyrir samfélaginu sem byggir landið ásamt því að hámarka upplifun og verðmæti sem af hverjum gesti hlýst.  

Previous
Previous

Ferðaþjónustuvikan – Ráðstefnudagur á Hilton 14.janúar

Next
Next

Skráning hafin á Ferðatæknimótið 2026