Grindavík - Saman í sókn
„Þátttakendur lýstu sameiginlegum vilja til að taka þátt í að endurbyggja samfélagið, skapa
ný tækifæri og efla atvinnulíf Grindavíkur með framsýni, seiglu og nýsköpun að leiðarljósi.“
Upphafsfundur verkefnisins Grindavík – Saman í sókn
Gjánni, Grindavík – 12. nóvember 2025
Í gær, 12. nóvember, hófst formlega verkefnið Grindavík – Saman í sókn með öflugum
staðar fundi í Gjánni þar sem stjórnendur og lykilstarfsmenn frá 21 fyrirtæki í Grindavík komu
saman til að hefja sameiginlegt starf í átt að endurreisn, eflingu og framtíðarmótun atvinnulífs
bæjarins. Verkefnið stendur yfir frá nóvember 2025 til febrúar 2026.
Verkefnið er á vegum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, unnið í nánu samstarfi við
Markaðsstofu Reykjaness og Grindavíkurbæ. Íslenski ferðaklasinn leiðir framkvæmd
verkefnisins í samstarfi við marga góða aðila, s.s Sjávarklasann, Íslandsstofu og fleiri.
Verkefnið er fjármagnað úr sjóði Byggðaáætlunar 2022-2036.
Sterkur vilji, samstaða og framtíðarsýn
Á fundinum ríkti sterkur andi samstarfs og bjartsýni á framtíðina. Þátttakendur lýstu
sameiginlegum vilja til að endurbyggja samfélagið, skapa ný tækifæri og efla atvinnulíf
Grindavíkur með framsýni, seiglu og nýsköpun að leiðarljósi.
Í umræðum kom fram skýr þörf á að byggja á þeim sterku gildum sem Grindavík hefur löngum
staðið fyrir. Jafnframt var bent á mikilvægi þess að auka skilning þeirra sem starfa utan
svæðisins á sérstöðu Grindavíkur og tryggja að þau tækifæri sem felast í sameiginlegri nálgun
atvinnulífsins verði nýtt til fulls.
Sérstaka athygli vakti þátttaka nýs fyrirtækis í sælgætisframleiðslu sem nýverið hefur hafið
starfsemi í Grindavík – skýr vísbending um trú á framtíðinni og þann kraft sem býr í samfélaginu.
Sameiginlegur vettvangur atvinnulífsins
Verkefnið Grindavík – Saman í sókn er sameiginlegur vettvangur fyrirtækja í Grindavík til að:
efla rekstrarhæfni fyrirtækja eftir áföll,
auka verðmætasköpun og þróa ný verkefni,
styðja við uppbyggingu bæjarins til framtíðar,
styrkja tengsl og samvinnu ólíkra atvinnugreina.
Sérstök áhersla er lögð á ferðaþjónustu, bláa hagkerfið, þjónustu, skapandi greinar og iðnað –
stoðir sem saman endurspegla fjölbreytni og styrk atvinnulífs Grindavíkur.
Fundarröð og vinnustofur
Fundurinn í Gjánni markaði upphaf að sex vinnustofulotum þar sem fyrirtækin taka þátt í
samræðu, greiningu og framtíðarmótun á grundvelli aðferða samkeppnishæfni og
klasasamstarfs.
Markmiðið er að kortleggja tækifæri, greina þarfir fyrirtækja og móta sameiginlega sýn til næstu
ára.
Hvaða sögu vilja Grindvíkingar segja?
Sú vinna verður leiðarljós áframhaldandi uppbyggingar og ímyndarvinnu bæjarins.
Þátttakendur í Grindavík – Saman í sókn
Converted Water Tower
Discover Grindavík
Fishhouse
Fisktækniskóli Íslands
Fjórhjólaævintýri ehf
Gistihús Grindavíkur ehf
Grindavík Seafood ehf
Grindavíkurbær
Grindin ehf
Guðlaugsson ehf
Hárhornið
Hérastubbur
HH smíði
Hótel Grindavík
Neskja ehf.
PGV Framtíðarform ehf
Rúnar málari
Sæbýli hf.
Sólskip ehf
Vélsmiðja Grindavíkur ehf
VIGT
Vísir ehf.

